27.10.2008 23:05:37 / frikki88

Long time no see

U já sælar nú... það er komið svona hálft ár síðan að það var bloggað síðast hér og svona hálft ár síðan að ég kíkti síðast inná þessa síðu... uuu þannig er mál með vexti að við erum allir hættir að vera vinir og hötum allir hvorn annan núna vegna mikilla deila sem spruttu upp varðandi þessa síðu og þar af leiðandi höfum við ekki séð okkur fært um að blogga hér... Annars er allt gott held ég að frétta af köllunum... Kem með svona smá update af hverjum og einum hér fyrir neðan...

Andri er fluttur til Kabúl þar sem að hann missti annan fótinn af sér og þar af leiðandi gat hann ekki farið í íþróttalýðháskóla í Danmörku eins og hann hafði gert ráð fyrir... Hinsvegar er hann fluttur uppí Hrosshaga núna og er að lifa lífinu, drekka bjór og temja hesta...

Arnar gerðist hnakki eftir að hann hafði náð að útskrifast frá ML og er fluttur á Selfoss þar sem hann stundar rassaríðingar í tonna tali á 800 bar, en sést hefur til hans þar hverja einustu helgi síðan að hann kom úr útskriftaferðinni, hann fjármagnar dvöl sína á 800 bar með því að negla spýtur fyrir Pálmatré...

Benedikt flutti heim til mömmu sinnar á Höfn en þegar hann kom þangað kom í ljós að engin mamma var til staðar, hann ákvað því í staðinn að gerast mamma og vinnur nú á leikskóla og þess á milli fer hann á koju fyllerí með Kela síkáta brjálaða kettinum sem beit næstum hendina af Geira...

Kristinn (Diddi) Ólafsson sagði bless við Patreksfjörð og hæ við Kópavog þar sem hann býr nú hamingjusamlega giftur með Þóru, meðan Þóra er á Laugarvatni heldur hann sér við með Rósu systir Þóru, annars er hann Diddi okkar massaðatröllið orðinn öryggisvörður hjá forseta Íslands eða var það hjá Öryggismiðstöðinni man ekki alveg allavega...

Friðrik(ég) ákvað að segja bless við gróðurhúsin í Hveragerði og sundlaugarvarðastöðuna sína og flytja út til Danmerkur þar sem han stundar nú nám við Drykkjulýðháskólan í Sönderborg, ekki er meira að segja frá honum nema að hann stundar kvennafar í óhóflegumagni og það sama má segja um drykkju, þess á milli stundar hann líka íþróttir...

Geir Þórir fann sér kærustu einhvern tíman á þessu ári og sagði henni svo upp einhvern tíman eftir þjóðhátíð... Hann býr bara í rokrassgati Íslands Kjalarnesi ásamt foreldrum sínum og stundar þess á milli sveitt djömm í bænum að ég held án þess að ég viti eitthvað.. og svo er hann bara í sinni venjulegu vinnu að pikka upp stelpur í Húsasmiðjunni...

Sævar Örn býr á tveimur stöðum en hann skiptist á að búa á Selfossi og í Hafnafirði, hann er ávallt jafn blankur og þegar hann reynir að eignast peninga tekst það ekki, síðasta tilraun hans fólst í því að reyna að selja bílinn sinn en hann varð að taka bílinn til baka eftir að enginn fyrirspurn hafði borist um hann...

Þá er ég búinn að skrifa nokkra punkta um hvað strákarnir eru að bralla þessa daganna... Allir erum við nú orðnir tvítugir nema hann Benni litli sem á ekki afmæli fyrr en 8 nóv, svo er annar punktur hér en við drengirnir byrjuðum með þessa síðu þegar við vorum í 2. bekk Menntaskólans að Laugarvatni í dag erum við allir búnir að útskrifast þaðan nema Geiri og Sævar en þeir stefna að því að útskrifast sem stúdent á næstu 10-40 árum... Annars segi ég bara bless í bili..


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 10:36:39 / Frikki

Nýtt bull 18 APRÍL 2008

Já mikið rétt, allt reynir maður til að halda þessari síðu lifandi, ég hef bætt inn smá nýju Bulli, njótið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 00:52:42 / Frikki

Nýtt blogg

Jæja, sæl og blessuð...

Langt síðan að það hefur verið bloggað á þessari síðu, það má segja að MySpace sé búið að taka völdin líkt og ég minntist á í einu bloggi að nú væri MySpace æði gengið í garð og eflaust myndum við hætta að blogga... og tja það má segja að það hafi gerst. Það hefur allavega ekki verið bloggað á þessari síðu í rúma 3 mánuði. Margt hefur nú gerst á þessum tíma, við höfum verið öflugir á djamminu, Sævi fór að vinna á Reyðarfirði en hætti þar, þar sem hann gat ekki verið svona langt í burtu frá okkur köllunum, það er spurning hvað hann gerir þá á næsta ári þegar við verðum búnir með ML :S Geiri er að vinna í félagsmiðstöð með fullt af smá stelpum. Ég sjálfur, Friðrik, er bara búinn að vera þvílíkt duglegur að læra og djamma þar á milli, sama má segja um hina, Benna, Andra, Didda og Arnar... En að öðru, ég, Andri og Svavar erum á leiðinni til Danmerkur 13 ágúst, já við erum að fara þangað í lýðháskóla, þannig við verðum þar kallarnir í rúma 3-4 mánuði, það verður alveg þokkalega skrítið að fara þangað frá öllum, en jú við höfum allavega hvort annað :P og Diddi er líka eitthvað að spá í að koma með okkur... djöfull á maður þá eftir að sakna Laugarvatnsins, hálf sorglegt það :S Benni og Gústi eru svo að spá í að fara í eitthvað Eurotrip á næsta ári og Assi að vinna eða háskóla... Þetta er funky, að pæla í því hvað við erum að verða gamlir, að verða búnir með Menntaskóla... Annars bara já, mikið búið að ské, Stjórnaskiptaferð til Danmerkur, Stjórnaskiptaball, fullt af öðrum böllum þar á milli, Árshátíð og Árshátíðarball og svo fleiri djömm á döfinni... annars ætla ég að fara að bulla eitthvað, í okkar heimsfræga bulli...

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 22:08:53 / Frikki

Nýtt bull

Skítt með nýárs kveðjuna hans Sævars því það er komið nýtt BULL !!!!
 
Snorri says:
ég elska bloggið ikkar heheheheh
Snorri says:
þetta er nú meira bullið :D
 
Takið eftir þessu gott fólk !!! með stafsetningarvillum og læti, en það skitir engu því þetta er hann Snorri okkar ;) 

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 14:23:34 / Sævi

Gleðilegt nýtt ár

Við óskum öllum gleðilegs nýárs og þökkum það liðna. :)

 

Nýarskveðjur. Garparnir


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 17:02:07 / Frikki

Flúðasýrutripsfyllerí

Smá blogg hérna frá kallinum þar sem ég ætla að tala um flippið hjá mér, Arnari og Andra í gærkvöldi... Allavega þá ákváðum ég og arnar og andri að skella okkur á flúðir og fara á ball á útlaganum og fengum við hann Snorra félaga til að skutla okkur, það var mjög mjög gaman, Arnar og Andri kepptust þar við að ná athygli einnar stúlku en jájá það gékk ágætlega kem meira að því á eftir... þegar klukkan var orðin hálf tvö þá segir andri "Strákar við erum ekkert hættir að djamma, það eru bara hommar sem hætta að djamma núna finnum okkur eftirpartí" og ég og arnar orðnir góðir af neyslu áfengis sögðum bara jájá höldum bara áfram að djamma. Þannig að við sendum dræverinn okkar heim og þar með vorum við orðnir fastir á Flúðum og gátum ekkert gert nema að fara í partí, fyrst fórum við til Unnars í teiti en það var nú svoltið slakt og voru þá arnar og andri en að reyna að næla í stelpu greyið, og aðrar manneskjur að gera hluti vandræðalega... Þegar það var orðið nokkuð ljóst að þetta partý hjá Unnar var ekki að meika það ákváðum við ásamt öllum öðrum að færa okkur um set og héldum við á vit ævintýrana í leit að öðru partýi, sem var nú auðfundið því okkur var bara keyrt þangað. Við vorum í því teiti til klukkan svona ca. hálf fimm um morgunin og þá var komið að því að finna gistingu, en tvær ákveðnar frænkur frá Syðra-Langholti sem ég nefni ekki á nöfn höfðu lofað okkur strákunum gistingu, nema hvað önnur ónefnda frænkan skrapp bara á Selfoss að gera einhverja hluti, mest hluti þá í bólinu að ég held, og hin ónefnda frænkan stakk okkur af og fór bara heim til sín að sofa og urðum við þá mjög pirraðir en þá einna helst urðu Arnar og Andri pirraðastir, því seinni ónefnda frænkan er stúlkan sem þeir ætluðu sér að næla í, en þó ætluðu þeir nu ekki að tvímenna á hana eða allavega held ég það. Þegar við strákarnir áttuðum okkur á því að frænkurnar tvær hefðu beilað á köllunum fórum við heim til Unnars aftur, þar fundum við okkur einbreitt rúm og lögðumst við þar þrír saman í það rúm með eina sæng og einn kodda og allir að spoona, hinsvegar ætlaði friðrik ekki að vilja að gista þarna þar sem hann hafði verið að tala við og reyna við eina flúðamær fyrr um kvöldið og hann reyndi án árangurs að hringja í hana og senda sms... Þessi nótt fór nú misvel í suma þar sem arnar sem svaf á öðrum endanum kvartaði undan plássleysi, friðrik (ég) sem svaf í miðjunni kvartaði undan samkynhneigð í strákunum því ég fékk ekki svefnfrið fyrir höndum á andra og arnari sem voru já mjög mikið að þreifa á mér alla nóttina, en andri kallinn sem svaf á hinum endanum kvartaði nú bara ekki neitt enda fékk hann hálft rúmið fyrir sjálfan sig... og já við fórum semsagt að sofa um svona hálf sex leytið. Klukkan 11 í morgun vöknuðum við og reyndum að ná áttum um það hvar við værum staddir og kíktum inní næsta herbergi þar sem þeir félagarnir Bjarni Steinars og Hannes lágu saman í einu rúmi, en það sem var skondið við þetta var það að Bjarni var steinsofandi bara í nærbuxum en Hannes var í fötum, anywho þá lögðumst við bara uppí rúm aftur og störðum á ljósaperu sem var í loftinu, og í svona hálftíma vorum við að rífast um litinn á henni, ég sagði að hún væri rauð, arnar sagði að peran væri blá og andri sagði að ljósaperan væri græn eða eitthvað man ekki alveg röðina á þessu því þetta var allt svo steikt. Eftir þessa hugveltu náði ég að koma strákunum á fætur og útúr húsinu þar sem við röltum uppí samkaup þar sem við áttum yndislega steikt móment alveg eins og eftir flúðapartýið þegar við vorum á fyrsta ári í ML, sem var mjög skemmtilegt, þangað náðum við að plata Örvar til þess að koma og skutla okkur og ná í Ragnheiði sem var farið okkar heim, Örvar Örbylgjuofn skutlaði mér andra arnari og ragnheiði uppí syðra-langholt þar sem bílinn hennar ragnheiðar var, þar hófst snjóstríð þar sem andri hrindi arnari sífellt í snjóinn sem var ansi djúpur þar, og þegar arnar ætlaði að ráðast á andra þá náði ég að ýta arnari þannig hann flaug fram hjá andra og beinnt í djúpa snjóinn, svo þegar við fórum í bílinn hófst mikil sýra þar sem var endalaust hlegið og gert mikið grín, þa hentum við andra út heima hjá sér, og fórum á selfoss þar sem við stoppuðum aðeins í pulsuvagninum og voru stelpurnar sem þar vinna greinilega líka á sýru því ein þeirra ætlaði fyrst að láta okkur borga 31 krónu fyrir sódavatn og 2 svala, svo hækkaði verðið í 3100 krónur og svo niður í 310 krónur sem var loka verð, eftir alla þessa sýru hoppaði önnur ónefnda frænkan uppí bíl því við vorum að ná í hana og við héldum í Hveragerði þar sem mér og arnari var hent út í Fagrahvammi en ragnheiður og önnur ónefnda frænkan fóru í bæinn, og þá er þessi æðislega saga búin vona að þið hafið nennt að lesa þetta ;) og já það eru myndir af þessu á MySpace síðunni minni myspace.com/frikki88

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 14:45:04 / Andri

jólablogg

Guten Tag!!!

ég ákvað að skella hér inn svona einu bloggi til að lífga aðeins uppá þessa síðu, nú er bara jólafrí og allir halda sig bara heima og borða og borða........

ég ætlaði nú bara aðeins að segja hvað er búið að vera í gangi hjá mér, þetta voru engin smá fjölskyldu jól hjá mér, Þórey systir og fjölskyldan hennar kom heima frá norðinu, Fríða frá Köben og Ketill bróði frá Reykjavík,,,,,,,, Þórey systir náði að kreista úr sér tvíbura rétt fyrir jólin eða það er að segja 20. des, þannig að stækkaði aðeins í fjölskyldunni,,,,,, þannig að jólin hjá mér eru búinn að snúast um það éta og horfa á litlu tvíbbana og segja svona " oooo, þeir eru alveg eins og kjúklingar ", og svo að passa hina tvo gemlingana sem Þórey á..........

já búið að vera nóg að gera hjá mér,,,,, en ég veit svo sem ekki með allt hitt fólkið, en maður fékk svona aðeins að frétta af því í gær þegar við hittumst flestir í afmæli hjá Stellu okkar, sem haldið var á Rauða Húsinu,,, það var mega fjör, nema hjá mér og Sæva sem vorum bara edrú og jolly, en allir hinir voru hauslausir og skelltu sér á ball,,, er það vert að nefna að Arnar Ármannson gerði lítið annað en að væla þarna í afmælinu yfir hversu léleg jól hann hafði haft og ég lýg því ekki að það komu tár frá þessum einstaklingi út af einhverjum jólagjöfum

 

en já en mér dettur ekkert meira í hug að segja ykkur frá,  ætla að skella mér á snjósleða

vonandi hafið þið haft það gott svona yfir hátíðirnar

 love you mens :o

kv. Andri 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 00:03:07 / Frikki

Bull

Komið nýtt í BULL !!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 11:14:30 / Frikki

Síðasta vika í hnotskurn

Jæja þá er leynivinavikan, Blítt og Létt, náttfatadagurinn og Náttfataballið búið en hér fyrir neðan kemur smá annáll um síðustu viku...


Vikan byrjaði þannig að ég dró Heiðrúnu sem leynivinkonu mína og ég var geðveikt góður við hana, svo tók stress dagurinn við, allavega hjá mér, Andra, Arnari og Diddi, Kynningardagurinn og svo Blítt og Létt(söngkeppnin) um kvöldið þar sem Buff spilaði undir. Eftir keppnina fórum við í stjórninni í bústað og héltum smá gleðskap til þess að fagna því að mesta stressið væri búið. Daginn eftir mættum við í stjórninni "hress" í skólann í náttfötunum og ég og benni með sængurnar okkar og ballerínu sængurverin, en ég endist ekki lengi í skólanum og fór bara upp í herbergi að hvíla mig fyrir átök kvöldsins, á ballinu gerðsist margt og mikið og kemur einhver hluti af því fram í Bullinu sem ég gerði áðan. Á ballinu spilaði svo Buff og voru þeir með eindæmum frábærir, hef ég heyrt, en ég var að sjálfsögðu í gæslu. Á laugardaginn vaknaði 4 bekkur snemma og reittum við yngri bekkingana til mikilla reiði með dólgslætum og flöskuskrölti þar sem við gengum á herbergi og fórum að safna að okkur óæskilegum umbúðum sem voru inní flest öllum herbergjum... Eftir það var aftur farið uppá vist og fórum ég og Benedikt í heljarinnar tiltekt þar sem svaka teiti hafði átt sér stað í herberginu okkar fyrir ballið, eftir tiltektina fór benni í Þykkvabæinn ásamt Arnari, Geira og Þórhalli og eftir vorum ég, Andri, Diddi og Gústi. Um kvöldið héldum ég Gústi Garðar Hjörtur og Binni lan mót í FM 08' og endaði það með sigri Garðars, sumir ekki sáttir með það. Svo það sem eftir var af helginni var sofið og slakað á og horft á einhverjar myndir og svoddan...

 

Það er komið nýtt BULL !!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 14:22:08 / Sævi

Blogg frá Reyðarfirði

Komiði sæl og blessuð, ákvað að henda inn einu bloggi að austan. En það er voða lítið að frétta héðan nema hvað ég sit á námskeiði alan daginn frá 8-16 alla daga nema um helgar, en það er ekki svo slæmt sjáiði til, ég er að fá borgað fyrir að sitja á rassgatinu allan daginn, ekki slæmt það. En það er voðalega lítið hægt að gera hérna skal ég segja ykkyr, það er að vísu hægt að fara í fótbolta 2x í viku sem er í sjálfu sér ágætt. En svo í kvöld er maður að fara í 3 rétta máltíð og svo ball eftir það:), þannig það verður bara stuð. Svo læt ég mig bara hlakka til að komast heim og fara á náttfataballið á Laugrvatni eftir viku:haha:, það verður sko gaman!!. En ég nenni ekki að skrifa meira.....CYA

 

Kv. Sævi 


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 20:09:17 / Andri

jebbjebb

jámms ákvað að skella inn einu bloggi, sudda lítið búið að gerast hjá okkur strákunum uppá síðkastið, en seinustu helgi var löng helgi og allir fórum við í sitthvora áttina og skelltum ég og frikki okkur erlendis... ég fór til DK að hitta Fríðu systir og Frikki fór til New York að spila NBA leik og svona.... Benjó fór á Höfn að dútla við sjálfan sig,,, Arnar fór heim í Kartöflugeymsluna,,, og Diddi og Sævar voru á laugarvatni,,,, einir á laugarvatni

en þetta var massa helgi miðað við sögurnar,,

svo núna um helgina koma Laugar til okkar, og verður það mega áfengislaus skemmti helgi

 

en nú er búið að senda Sæva austur á Reyðafjörð, að vinna í Hosteli norðursins og munum við sakna sveitta, loðna kútsins okkar, og vonumst við til að sjá mannin rekinn sem fyrst aftur suður í vinnu á elliheimilinu Kákasus

en meira hef ég ekki að segja í þetta skiptið

verið þið sæl 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 20:10:45 / Sævi

jájá

Ætli maður bloggi ekki eitthvað smá fyrst enginn annar nennir því. En síðasti mánuður hefur verið fremur rólegur hjá okkur öllum, allir byrjaðir í skólanum, það er að segja allir nema ég og Geiri. En ég er nú nánast á hverjumn einasta degi þarna á Laugarvatni. En hérna sit ég bara heima hjá mér að bíða eftir því að fá svar hvenær ég á að fara á Reyðarfjörð, já þið það er rétt, ég er að fara á reyðarfjörð og hættur í kjúklingnum. En ég er samt að fara þangað einn:S sem verður soldið skrítið. Svo er Geiri bara að vinna líka á fullu í að moka skurði eða hvað hann nú gerir þarna á gröfunni sinni, svo eru allir hinir bara í skólanum eitthvað að nördast. En núna um helgina sem leið var farið á ball í hinum mikla bæ sem nefnist Hafnarfjörður en þar voru Paparnir og Bubbi að spila fyrir dansi og var mikil ölvun þarna á fólkinu en þó mis mikil en þar má nefna þá herbergisfélaga Benna og Frikka sem voru mann ölvaðastir og voru nú ekki beint skemmtilegir á leiðinni á Laugarvatn en sem betur fer "sofnuðu" þeir á leiðinni og voru þeir Diddi og Hassi vakandi með mér alla leiðina. En ekki nenni ég að skrifa mikið meira hérna, þannig ég segi bara takk fyrir mig.

 

Kv. Sævi 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 23:02:07 / Frikki

Feitt LARP

Jæja við strákarnir erum núna búinir með viku djókið okkar á hann Svavar Geir, en í síðustu viku þá byrjuðum ég og benni með þann djók að við höfðum verið að LARP'a (Live Action Role Playing) uppi hjá Jónasi... en LARP snýst útá það að klæða sig í riddara búninga og berjast með kylfum og allskonar dóti og eitthvað, Svavar var ekki að trúa þessu fyrst en þegar hann kom að mér og benna vera að skoða LARP dót, brynjur og sverð og skildi, þá var hann byrjaður að trúa þessu og hann hélt áfram að trúa þessu næstu vikuna og talaði alltaf við okkur og spurði okkur hvort við værum ekki að grínast en við héldum áfram að grínast í honum og við sýndum aldrei svipbrigði þegar hann spurði okkur útí þetta... Svo nú í kvöld kom að stundinni sem við fórum að LARP'a við ákváðum að fara út klukkan 22:00 og svo vorum við allir að fara að finna okkur buninga og þá kom Svavar með gullna setningu "Ég ætla að fara að finna mér skikkju!!!" og hann hljóp út þá lokuðum við strákarnir hurðinni og drápumst úr hlátri, svo 5 min seinna kom hann inní herbergi búinn að setja skikkju á sig og við noturlega reyndum að sýna engin svipbrigði og það virkaði, þá fórum við strákarnir að klæða okkur í föt og fórum svo út að LARP'a og já svavar trúði þessu allan tíman, við vorum úti á túni fyrir aftan skólann og vorum þar að berjast... eftir 10 mínútna bardaga ákváðum við að fara á vistarnar og gera allt brjálað og larpa þar, við fórum útá Kös fyrst og vorum að berjast á setustofunni og þá kom án gríns allir sem voru á vistinni að horfa á okkur, svo þegar við nenntum þessu ekki lengur tókum við Svavar Geir upp á borð og sögðu honum að þetta væri allt grín og hann var ekki sáttur, en við héldum þó áfram með þetta grín og fórum á Nös og fórum inní herbergi að berjast þar og enginn vissi hvað var í gangi... Skelli nokkrum myndum inn á morgun þegar Benni er hættur að vera í Counter-Strike í tölvunni minni...

Frikkinn kveður og vonar að einhver af nennt að lesa þetta

"Ég ætla að fara að finna mér skikkju!!!"

ÞAÐ ERU KOMNAR INN MYNDIR ÞÆR ERU HÉR FYRIR NEÐAN

p.s núna erum við ekkert að grínast með þetta, þetta var aðeins of gaman og ætlum því að stofna LARP klúbb og það verður ekkert grín í gangi þá, það verður væntanlega fundur á morgun, það verður hengd upp auglýsing uppá töflu inní skóla um þetta varðandi þennan fund... Allir að mæta !!!

 

Það eru síðan fleiri myndir á MySpace síðunni minni http://myspace.com/frikki88

Kallarnir að undirbúa sig

Svavar sáttur í skikkjunni sinni

Kallinn til búinn í slaginn

Arnar The King

Svavar skemmti sér sko konunglega !!!

SIGUR !!!

 

ATHUGIÐ NÝTT BULL KOMIÐ Á SÍÐUNA


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 11:15:07 / Diddinn

battle of the blog

Heiðrún og Arna pirraðar í höfuðborginni í gær

Heiðrún sást með gaur sem var minni en hún ( getur eitthver sagt mér hvar hún fann hann????)

4.bekkjar druslurnar að ljúga uppá garpanna

Benno rólegur á ballinu

Stelpurnar vaðandi í slagsmálum í Árnesi

Hassi með stelpu frá Fáskrúðsfirði

Stelpurnar buin að eigna sér rusty ( sumir að kalla suma nöfnum )

Svavar hættur að stunda kynlíf ( buinn að fa laust pláss á klaustri eftir áramót)

Stelpurnar henda öllum yngri nemendum út af fjarvist ( þær standa sig vel að vera 4. bekkjar gribburnar )

specialz reyna að eigna sér strákanna ( við viljum ykkur ekki !!!!!)

Við fáum ekki að velja okkar eigin vini :(

Strákarnir bunir að gera díl við pálma fá að fara á kös ( jíbbí jey )

ERum að fara taka þunglyndistöflurnar svo við lifum þennan dag af

 

GARPARNIR KVEÐJA ( að elífu )

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 22:03:19 / Andri

ég er bara róóleguur

Jæja ég ákvað að skella einu bloggi inná þessa síðu eftir svona frekar dauðan tíma hjá okkur strákunum,,

nú erum við allir komnir uppá laugarvatn aftur, það er að segja allir nema Sævi og Geiri,( en reyndar kemur sævi svona annan hvern dag á vatnið;). Og höfum við verið svona frekar blautir en við höfum djammað fimmtudag, föstudag og laugardag síðan í busavikunni( meira að segja Diddi :o ) en menn voru orðnir einhvað þreyttir á þessu þannig að við fórum allir í sitthvora áttina þessa helgina, assbert og benjó skelltu sér í kartöflunar heima, Frikki fór að vinna/drekka á Valhöll og Diddmasterinn fór í bæinn í einhvað afmæli, annars er ég bara heima og fer að vinna á morgun,,,

en þetta sem skrifað var hér fyrr er bara forleikur fyrir stærstu fréttir sem farið hefur um landið síðan stóra munntóbaksmálið 97,,,,, já það er rétt Arnar Ármannson er að möndlast með kellingu :D

Diddi er heitur teitur með einni ónefndri

Benjó þarf að berja Regínu af sér með þungum hlutum á öllum tímum sólarhringsins

Frikki neitaði 3-some með Stellu og Jónínu (skrýtið?)

Geiri týndur?

Sævi sveittur að éta hráa kjúklinga

en meira dettur mér ekki í hug þessa stundina

bleee 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 80471